Ásdís galdranorn Jónsdóttir

Ekki er öll vitleysan eins!

laugardagur, maí 09, 2009

Það er sól og sumar í dag Öðruvísi var í gær en þá lenti ég í að sækja bíl og draga hann upp Ennishálsinn í foráttu skafrenningi og snjókomu, Árdís mín og vinkonur hennar á Blackfield sem kominn var á sumardekk. þetta var skemmtilegt, þær rétt sluppu líka yfir Holtavörðuheiðina áður en henni var lokað, en þar var líka vitlaust veður. Það var með eindæmum notalegt að koma í Undralandið eftir þetta. Ég heppin að vera búin að fá mér þetta glæsilega trukkadráttartóg.
Það er að bresta í Hólmavíkurlogn og sólskin, Andstæða þess er af doltið leiðinlegum uppruna hér á tanganum þar sem dæla hefur verið í gangi undanfarið og dælt rækjublönduðu klóaki upp úr brunni fyrir neðan Magga Jóhús, og rennur það ofanjarðar í afar grunnum skurði til sjávar, lyktin af þessu er angandi í MaggaJóhúsi og víðar um tangann. En sennilega er þetta krepputilraun til að spara. Samt soldið leiðinlegt, og maður er að afsaka þetta við fólk sem kemur að í heimsókn og er ekki orðið samdauna sparnaðarlyktinni. vonandi breytist vindáttin og fer að standa á haf út. Það er leiksýning , Elvar Logi í bragganum í dag og myndlistasýning á þróunarsetri og eitthvað fleira skemmtilegt.

2 Comments:

  • At 11:45 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    sæl ég frétti af þér og langar svo að sjá hjá þér hús/kofa sem sett eru utanyfir rotþrær, ertu að selja þau?' langar svo að sjá og kaupa svona í sumar ef þú átt þetta til eða gerir eftir pöntunum, fann engan link með emailadressu hjá þér á síðunni. myndi gjarnan vilja ná sambandi við þig í email. mitt er: steinasmarta@simnet.is

     
  • At 9:32 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    emailið mitt er asdisj@snerpa.is

     

Skrifa ummæli

<< Home