Ásdís galdranorn Jónsdóttir

Ekki er öll vitleysan eins!

þriðjudagur, nóvember 10, 2009

Þetta var 2004

<: Ég er að drepast úr hreyfingarleysi...aaaarrrrrgh. Búin að hanga yfir sjónvarpinu , borða laufabrauð, og lesa í allan dag nema þegar ég skauzt á jólabarnaballið. þar var múgur og margmenni og alltaf jafn gaman að sjá hvað allir voru fínir og glaðir í jólafötunum sínum. Bjarni Ómar söng vel og skemmtilega eins og hans er von og vísa og fjórir Jólasveinar hoppuðu í salinn og gáfu börnunum svala. Það er ömurleg hálka og ekki hægt að fara út að skokka...Á aðfangadag var svælingsbylur og slæm veðurspá svo ég fór ekkert heim þrátt fyrir áð Jóni Gísla fyndist það bévítans aumingjaskapur..Ég fór í aftansöng í kirkjunni og var næstum því orðin mér til skammar því ég var svo syfjuð og löppin á mér var alveg að segja upp.. En það var mjög notalegt jólahaldið hérna hjá mér.allt fínt og flott. Ég borðaði hangikjöt og síldarsalat og laufabrauð í jólamat. og drakk bláberjate og kex með osti í kvöldkaffinu. opnaði allar jólagjafirnar mínar og það var nú ekkert smáræði. fékk sex bækur, tvo engla, Jólasvein, lampa, fullt af flottum myndum, Körfu með allskyns góðgæti, kerti, skrítinn stein, Æðislega hillu sem Nonni smíðaði, og geisladisk sem Árdís tók upp heima í Steinó, Svo talaði ég við Árdísi ,Hönnu Siggu og Gústa, svaf yfir biskupnum í sjónvarpinu og las á jólakortin sem eru hér hjá mér og drattaðist svo í rúmið.las eina línu og svaf svo til hálf tíu á jóladagsmorgun.
skrifað af �sd� @ 21:10 0 comments
fimmtudagur, desember 23, 2004

Hæ Hó. nú er komin þorláksmessa og mér finnst ekki vera nema einn dagur síðan í fyrra á þorláksmessu tíminn hefur liðið eitthvað svo fljótt.....en altt sem hefur gerst síðan þá það er ekki neitt smáræði... og nú eru að koma jól eina ferðina enn , alltaf sama stuðið þegar fólk er hraust, en því átakanlegra hjá þeim sem eru það ekki, og þeirra aðstandendum. það eru horfur á að þetta verði þau jól sem ér kemst ekki heim því það er spáð snarvitlausu veðri á aðfangadag og nú er ég orðin svo skynsöm að ég æði ekki út í´öll veður hoho... én kannske er það nú vegna þess að ég er með aðra löppina frekar lélega til gangs og bakið er ekki til moksturs. Nefnilega í vondum veðrum verður maður að geA HOPPAÐ ÚT ÚR BÍLNUM OG MOKAÐ SNJÓ EINS OG ÓÐUR BAVÍANI. Gústi hringdi líka til að ræða þetta og hafði áhyggjur af því ef ég færi að ana út í eitthvert óveður. en við ákváðum bara að fresta jólunum aðeins... Já og svo er þess að geta að hún Árdís mín sendi mér nýja MÚS alveg dúndur mús = þ.e. tölvumús.. og hún er eins og hugur manns ég var alveg að fara á límingunni út af gömlu músinni, sargaði henni af öllum kröftum fram og aftur og ekkert gekk. semsagt ný svört mús með ljósi í.. sem þarf varla að koma við til að hún sinni sínum störfum...takk Árdís mín . Nú svo ætlaði ég að skella nýju músinni í en..púff.. þá gerðist ekkert...Jón kom svo og las eitthvað yfir þeim þ.e. músunum. og þá var nú allt í lagi galdra galdra..... takk Jón minn... Nú og í gærkvöld gerðist enn eitt mjög langþráð atvik.. Smíðameistari fjölskyldunnar birtist hér og hífaði upp stóru hurðina inn á ganginn í Undirheimum.. Þ.e. Hýbýlum vindanna. og nú er alveg dásamlegt að loka og opna...Takk Jón Gísli minn.... Ég á líka eitt hér sem er orðið sjaldgæft að sjá hehe. einfalda gluggarúðu með frostrósum á ég var að reyna að taka mynd af henni.. OG ég verð að fara að læra að setja myndir inn á bloggið mitt Jooooón plíííís. OG ég er búin að pakka öllum jólagjöfunum og á eftir aðeins smávegis kort og annað pínkupons sem heyrir jólasveinunum til.. og er líka búin að gera sjálf eitt sem ég er búin að hlakka mjög til og það er að skafa gamlar málningar skellur af eldhúsgólfinu og skrúbba það og bóna. það verður nú aldrei flott en lagaðist mikið. ég hefði átt að taka sögulega mynd af því á undan og eftir, eins og í Ísland í bítið þegar verið er að lappa upp á konurnar. Jæja nú er´það stiginn og svo fer nú að verða fínt.
skrifað af �sd� @ 08:45 0 comments
miðvikudagur

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home