Ásdís galdranorn Jónsdóttir

Ekki er öll vitleysan eins!

laugardagur, október 27, 2007

Eitt af fallegun ljóðum Megasar:

Tíminn flýgur áfram, og hann teymir mig á eftir sér
Og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer
En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
Og leiði mig á endanum aftur til þín.

‘Eg sakna þín í birtingu að hafa þig ekki hjá mér
ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér
Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á
En ég sakna þín mest á nóttinni þegar svipir fara á stjá.

Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær
stjörnur í blárri festingunni sem færast nær og nær
‘Eg man þig þegar augu mín eru opin hverja stund
En þegar ég nú legg þau aftur fer ég á þinn fund..

Ekki furða þótt kallinn hafi fengið heiðursmerki á degi íslenskrar tungu.

3 Comments:

  • At 1:41 f.h., Blogger Little miss mohawk said…

    Hvað heitir þetta ljóð ?

     
  • At 11:32 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    það heitir , Tvær stjörnur, en tekstinn er allnokkru lengri eða..

    Tíminn flýgur áfram, og hann teymir mig á eftir sér
    Og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer
    En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
    Og leiði mig á endanum aftur til þín.

    Ég gaf þér forðum keðju úr gulli um hálsinn þinn
    svo gleymdir þú mér ekki í dagsins amstri nokkurt sinn
    Í augunum þínum svörtu horfi ég á sjálfan mig um hríð
    og ég vonaði að ég fengi bara að vera þar alla tíð.

    Það er margt sem angrar en ekki er það þó biðin
    því ég sé það fyrst á rykinu hve langur tími er liðinn
    og ég skrifa þar eitthvað með fingrinum sem skiptir engu máli
    því að nóttin mín er dimm og ein og dagurinn á báli.

    Já og andlititð þitt málað hve ég man það alltaf skýrt
    augnlínur og bleikar varir, brosið svo hýrt.
    Jú ég veit vel að ókeypis er allt það sem er best
    en svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst.

    ‘Eg sakna þín í birtingu að hafa þig ekki hjá mér
    ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér
    Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á
    En ég sakna þín mest á nóttinni þegar svipir fara á stjá.

    Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær
    stjörnur í blárri festingunni sem færast nær og nær
    ‘Eg man þig þegar augu mín eru opin hverja stund
    En þegar ég nú legg þau aftur fer ég á þinn fund..

     
  • At 11:35 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Nú ætla ég að kommenta til prufu og athuga hvort eitthvað er að.

     

Skrifa ummæli

<< Home