Ásdís galdranorn Jónsdóttir

Ekki er öll vitleysan eins!

mánudagur, nóvember 06, 2006

Það er prýðilegt veður í dag og vona ég að sé eins heima á Ströndum. 'Eg fór í leikfimi í morgun og var heldur ófimleg. Verri hliðin á mér fúnkerar bara ekki nógu vel. jamm og svo í léttustu útigönguna sem mér leyfist að fara í. og þegar inn var komið fór ég í tækjaþjálfun sem mér gengur vel með. Hjóla og svofrv. Lyftingameistari er ég góð get enda setið á rassinum við það. Eftir að hafa hámað í mig grænmetið og drukkið grasate með kræsingunum. fór ég í heilsubað sem er aaalveg óóóggeeðslega goootttt. bara ofan í stórt baðker með heitu vatni og ilmandi olíu. síðan fór ég upp í rúm og las glæpó og svaf og núna er komið kaffi sem er reyndar tedrykkja með jurtatei. og á eftir ætla ég að fara og synda helling. Leiðarljós í dag enda mánudagur. og er það afar gott fyrir sálina.
'Eg vil ekki láta drepa Saddam Hussein mér finnst að þó hann sé algjör skítur og búinn að láta drepa fullt af fólki þá sé það ekki til bóta að drepa hann líka. bara hafa hann í fangelsi. Það eru margir aðrir sem hafa líka staðið fyrir drápum á fólki og eru samt lausir og sprellifandi.

4 Comments:

  • At 5:16 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hafðu það óskapleg gott og komdu endurnærð til baka.

     
  • At 5:56 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Finnst þér saddam algjör skítur ?

     
  • At 10:32 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Alveg sammála þér með Saddam, það er líka svo gaman að hlusta á hann rífast í réttarsalnum, meðan að dómurinn er kveðinn upp þá rífst hann og skammast. Ég er ekki hlynnt dauðadómi og vildi því að hægt væri að snúa fólki til betri vegar og það sæi hvað það hefði gert. Er svo sem ekki viss um að það sé hægt með Saddam.

    Það er ansi grunsamlegt að þú skulir telja niður dagana í Hveragerði. Ertu með heimþrá? Hér er allt leiðinlegt þessa dagana, erum reyndar að skella okkur á árhátíð byggðarinnar á laugardaginn.

    Ég held að Vera sé flutt í Hveragerði, þú gætir droppað í kaffi til hennar.

     
  • At 4:49 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    'Eg held að Saddam sé allavega hálfgerður skítur inn við beinið en ég vil alls ekki láta drepa hann samt.
    Muuhoooho Mér finnst nú að alltaf sé eitthvað spennandi að gerast þarna heima. þið verðið að senda nákvæmar fréttir af Byggðadjamminu.
    Það er mesti munur að geta komist í tölvu hér. gaman að fá comment frá ykkur. en ég kemst ekki inn á tölvupóstinn minn...

     

Skrifa ummæli

<< Home