Ásdís galdranorn Jónsdóttir

Ekki er öll vitleysan eins!

sunnudagur, september 18, 2005

Ókey, Laufey er farin í partýið á Hallormsstað og ég er búin að fara í Skarðsrétt og Svanshól og vera þar í allan dag klukkan er víst orðin hálf tvö svo það er eiginlega komin nýr dagur, eða þannig sko það er eiginlega nótt, og á morgun er kominn nýr dagur, þetta var alveg prýðisdagur í alla staði, en ég gleymdi fokking sundbolnum mínum fyrir norðan.
Kisa er greinilega mjög fegin að ég er komin heim hún er búin að hreiðra um sig ofan á skírteininu mínu um 30 kennslustunda nám í ensku frá Farskóla Vestfjarða.
Það er fyrirliggjandi að fara að sofa, góða nótt allir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home