Ásdís galdranorn Jónsdóttir

Ekki er öll vitleysan eins!

miðvikudagur, janúar 09, 2008

Það er eitthvað svo leiðinlegt alltíeinu og ég er að hugsa um að gott væri að vera björn og leggjast í hýði, vonandi verður letikast þetta runnið af mér á morgun og mitt venjulega orkubú á fullsving að gera eitthvað, taka sér eitthvað fyrir hendur spennandi, í augnablikinu langar mig ekki til að gera neitt, ekki er hægt að fara að sofa því þá vakna ég um miðja nótt, eins og fjandans draugur, ég fer bara að horfa á sjónvarpið en ætti að fara út að labba, geri ekkert sem ég ætti að gera, sofna svo yfir sjónvarpinu endemis hallærisleg, var að huxa um að synda áðan en hætti við það, Grey ég er að drepast úr sjálfsvorkunnsemi, á ekki tilverurétt, leiðindaskjóða, nenni engu, Jú ætla að fara að lesa spennandi bók sem ég fékk lánaða í bókasafninu.

2 Comments:

  • At 9:42 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    það er nú allt í lagi að hvíla sig inná milli, en ekki of lengi samt. Stundum þarf maður þess og kanski bara meira en aðrir svo er þetta kannski ekki bara leti mamma mín!!! þettta lagast!!!

     
  • At 7:49 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Svona dagar koma hjá manni! En um að gera þá að vera í leti og njóta þess. Það geri ég! :)

     

Skrifa ummæli

<< Home