Ásdís galdranorn Jónsdóttir

Ekki er öll vitleysan eins!

sunnudagur, ágúst 10, 2003

Eftir hádegið fórum við svo til Önnu Jörg. og lögðum svo á stað í reisu á bílnum hennar. fórum fyrst á Selfoss þar sem við snæddum kjúkling. Síðan áleiðis upp að Sólheimum en þangað hefur mig alltaf langað til að koma og skoða mig um. Og ekki var slæmt að hafa Önnu sem leiðsögumann.. Við stoppuðum Á gömlu Borg í Grímsnesi Þar sem Böðvar Páls og LísaTomsen á Búrfelli reka kaffistofu og bar. Það var einmitt hlaðborð í gangi og Böðvar var að spila á harmonikkuna sína Hann spilaði fyrir mig nokkur lög. Og síðan spilaði ég nokkur lög Og allir sungu hástöfum með .. Það var svaka gaman að koma þar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home